Budapest

Thursday, October 27, 2005

Saying of the day

A day is lost if one has not laughed. ;)

Saturday, October 22, 2005

Gaman að vera til

Jájá, það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég var búin að gleyma passwordinu minu og þurfti að ná mér í nýtt... nörd!!! Annars er alveg fullt búið að gerast í lífi kötlunnar síðan ég skrifaði síðast.. hmm látum okkur sjá, ég fékk eðalfólkið Nönnu og Gísla í heimsókn til mín og það var algjör snilld, það er svo gaman að skemmtilegu fólki!!! Við brösuðum ýmislegt, ég labbaði með þau um allar trissur og við tókum okkur pásur við og við at local watering holes til að væta kverkarnar, sem er alveg nauðsynlegt. Svo vorum við iðinn við að fara út að borða og bara njóta alls þess besta sem budapest hefur upp á að bjóða. Og sunnudag einn þá var vinsmökkun mikil framkvæmd, alveg við hæfi þar sem vín eru jú sérsvið hans gísla, þetta var nú samt sem áður mjög svo óvísindaleg og ófagmanneleg vínsmökkun hjá okkur "smökkuðum" af uþb 9 víntegundum á þessum blessaða degi víðs vegar um borgina.. nátturulega flaska í hvert sinn, já við skulum segja að mánudagurinn hafi verið erfiður.... já erfiður er gott orð fyrir líðan okkar þann daginn.. hehe en í heildina litið æðislegt að fá þau og bara hlakka til að sjá þau aftur... don't cha...

Svo eftir heimsóknina var bara back to school og allt það, það er svo skemmtilegt núna á þessari önn þá eru bara próf í hverri viku mér til mikillar gleði og almennrar ánægju... fullt af svona oh já svo er stórt próf á morgun, æ gleymdi deildin að láta ykkur vita æjæ leiðinlegt en ss próf á morgun úr öllu sem við höfum farið yfir til þessa... ja er það æði!!! ja skólinn minn er skemmtilegur!! ég held ég fari ekki út í það að þrasa um það þá verður þessi færsla ansi löng!! so i'll spare you, you'll just have to take my word for it..

Annars er svo mikil hreysti í húsum mínum í dag, bara fór á fætur fyrir 9 á laugardagsmorgni (þekkist ekki) og henti mér í 2 kls military box brjálæðistíma, fór svo í búð og verslaði mat fyrir heilan her, ég var svöng í búðinni.. alveg hættulegt!! og sit núna á meltunni og líður bara orgasmískt vel eftir erfiði morgunsins, viðbjóður að vakna og erfitt að byrja að æfa en god þegar maður svo kemst af stað.. bara scary stuð sem maður kemst í hahaha jaja allt í lagi, góð saga katla mín..

Þannig ég sit herna að fara í það að læra fyrir lyfjafræði próf sem er eftir viku og leonard cohen ætlar að hjálpa mér við það í auknablikinu, hann hljómar herna svo fallega úr nýju fínu hátölurunum sem ég kaupti mer í gær í media markt.... meira að segja fylgdi lítill lady subwoofer með... ha... glæsilegt, la musica... mi amore

vona að það eru fleiri jafn syngjandi glaðir og ég er í dag.... just can't wipe this smile off my face... ;)

Sunday, September 25, 2005

Sunday

Hvað gerir maður á sunnudögum þegar maður býr einn í Búdapest?? Eða bara hvað gerir maður yfirleitt á sunnudögum?? Mest lítið myndi ég segja.... Ég átti fína morgunstund, vaknaði um 10, opnaði augun fór aðeins fram úr og ákvað að það var ekki tímabært að fara á fætur þannig að ég samviskulaust skreið aftur upp í! Það eru alveg bestu morgnarnir þegar maður getur leyft sér það!! Svo fór ég jú fram úr á endanum, drakk kaffið mitt og áður en ég vissi af ég var komin í þrifnaðaræðiskast!!! Hvað er það?? Ég var alveg komin út í það að þrífa skúffurnar í eldhúsinu og stóð mig að því að standa fyrir framan eldavélina og var að þrífa hnappana á vélinni, já litlu snúi takkana!!! Reyndar þegar ég labba fram hjá eldavélinni núna finnst mér hún aldrei hafa verið fallegri!!! hehehe ;) Þetta er e-ð sem bara stelpur gera, ég er 100% viss um það að engum strák myndi nokkurn tíman láta sér detta það til hugar!!! Well the moment has passed.. sem betur fer hehe

Annars er bara nokkuð tíðindarlaust hér, ég er byrjuð í skólanum á fullu, sem er fínt, fögin eru reyndar misskemmtileg en það er alltaf svoleiðis. Mér finnst reyndar massagaman í meinafræði, sérstaklega verklegu tímunum! Síðast vorum við að framkvæma svona autopsy, áttum að komast að því afhverju litla svínið dó, eða réttar sagt úr hverju.. mjög spennandi!! Does that make me strange.... well i am strange so... Stundartaflan mín er miðurskemmtileg að því leyti að ég er kl 8 alla morgna, sem er mér alls ekki að skapi, not a morning person og allt fög þar sem er mikilvægt að vera á staðnum og vakandi, þ.a.l var síðasta vika ekki alveg að gera sig, það var svo viðbjóðslegt að vakna og ég var síður en svo mannblendin... En þetta hlytur að venjast!! haha við skulum vona það, annars verð ég bara andfélagslegi íslendingurinn, sem er of merkilegur með sig til að tala við aðra!! ;)

Ég er annars bara að eiga mjög rólegan og þægilegan sunnudag, er bara með þæginlega tónlist á og er bara e-ð að snúast í kringum sjálfa mig, held að ég haldi því bara áfram...
bið að heilsa í bili

Wednesday, September 07, 2005

Budapest once again

Þá er ketillinn komin aftur til pestarinnar, sem jú þýðir að ég stóðst síðasta ár, jíbbí, eða e-ð?! ;) Síðasta próftörn var án efa viðbjóðslegasta próftörn, sem ég hef átt heiðurinn að lifa af og ég á varla til orð yfir það að ég sé "back for more"! I must be a glutton for punishment! En við gefumst ekkert up!! Verða að segja að það var alveg fyndið að koma aftur, mér fannst það bara ekkert svo skrýtið, það var meira að segja ágætt. Er allavega ekki að lifa upp úr ferðatösku and i have all my stuff.. ;) Sem er fínt, although home is where the heart is. Ég átti svo frábært sumar heima, ég er nefnilega svo rík að þekkja svona mikið af skemmtilegu og góðu fólki, sem gerir það að verkum að hugur minn er oftar en ekki þar.

Síðan að ég kom til baka er ég jú, búin að læra vera að fyrir próf, sem er búið að vera vægast sagt uh leiðinlegt, ég hef verið svo brjálæðislega eirðarlaus og agalaus eftir letisumar mikið að ég hef varla getað haldið mér við í meira en 5 mín í senn, alveg skelfilegt ástand það! Prófið var í gær og núna er bara að bíða eftir niðurstöðum, endalaust skemmtilegt!! Frekar óþolinmóð!!

Þannig nú sit ég nýbuin að borða hádegismat, sem ég matreiddi meira að segja sjálf og stalst til að fá mér rauðvínsglas með (róa taugarnar.. ;) og veit hreinlega ekki hvað ég á að taka til bragðs, þannig að ég ætla bara að halda afram sitja á bossanum, hlusta á tónlist og njóta þess að gera nákævmlega ekki neitt... last chance!!

Annars er bara rokk í búdapest!! Ég mun alveg vinna í því að beita miklum þrýstingi til að fá sem flestar heimsóknir á þessu skólaári!!! Telling you it't the place to be.... ;)

Wednesday, March 16, 2005

The sun is shining......

Hvað það er gaman að vorið er að detta inn!! Yndislegur tími!! Í dag var þjóðhátíðardagur ungverja og alveg ótrúlega fallegur dagur! Magnað hvað smá sólarglæta getur breytt andliti borgarinnar og borgarbúa! Allir kátir og brosandi! Ótrúlega skemmtileg tilbreyting. Ég var nú búin að ákveða fyrst að það væri nú frí í dag og allt lokað að vera bara heima og læra en þegar ég skreið úr bólinu í morgun og sólin tók á móti mér, gat ég ekki staðist freistinguna að fara út og njóta veðursins og vera með í hátíðarhöldunum. Gaman að sjá hvernig Ungverjar halda upp á daginn, nokkuð athyglisvert, vildi samt skilja meira í ungversku, alveg á dagskrá!! Svo er nú víst bara blíða framundan þannig að ég verð bara negla hleranna fasta við gluggana svo ég komi e-u í verk!! such a sucker for good weather!! Það eða búa mér til vinnu aðstöðu á bekknum hérna fyrir utan hjá mér!! ;)

Annars sit ég bara hér klukkan að ganga 2, listening to the blues, but not feeling blue, on this lovely evening, stundum langar manni ekki að fara að lúlla, bara njóta! Ég læt það bara eftir mér...

Tuesday, March 08, 2005

The dancing queen

Þá er maður kominn aftur eftir Íslandsförina og alveg búið að taka mig viku að komast aftur í Búdapestgírinn, en allt að smella. Þá er bara næst á dagskrá að komast í lærigírinn, ekki alveg búið að gerast! Ég er nefnilega búin að vera svo upptekin við að sósíalísera síðan ég kom til baka, áfengi er böl!!! Ég er alveg búin að sanna fyrir svíunum að íslendingar kunna að drekka, hehe, alveg fyndið, fór út með nokkrum stelpum úr skólanum og við vorum svona að drekka það sama, þær voru gjörsamlega rúllandi og voru ekki að fatta þegar ég stakk upp á að við fengjum okkur smá tequila, fannst það alveg tilvalið!! ;) kannski bara segir meira um mig... hehe æjæ

Ég ákvað því í dag að "turn a new leaf" og djamma minna og læra og æfa meira, þannig að ég henti mér í leikfimi, hélt að ég væri að fara í box tíma, en nei, þetta var ekki box tími, þetta var einhver helvítis dans palla e-ð from the 90ies!!! eða e-ð álíka skelfilegt, svo er ég svo spastísk í svona tímum, ég var alveg í hláturskasti að halda í við þessar hræðilegu hreyfingar, svona MC Hammer moves, alveg grátlegt!! Ég held ég hafi svitnað meira við að hlægja að sjálfri mér heldur en við átakið sjáft, skelfilegt að vera einn í svona situation, en þó hefði einhver verið með mér hefði örugglega pissað í mig!! Svo var liðið í kringum mig að taka þetta voðalega alvarlega, metnaður lagður í hvert einasta skref, svo kemur spassi eins og ég og skemmi þetta fyrir þeim!! ;) of fyndið, never going there again!!

Anyhoo ákvað að droppa inn og sanna að ég anda enn hér í pestinni. Enn skííítkalt hér, gat verið að það væri metkuldi í ungverjalandi fyrsta veturinn minn hér!! en hey it's all beautiful!!
best að koma sér í bólið

Thursday, February 17, 2005

It's alive

Ok, það skráist hér með í bækurnar að ég er heimsins versti bloggari!!! Það er bara búið að vera svo brjálað að gera hjá mér síðustu vikurnar að ég hef bara ekki vitað annað eins! Heimsóknir á heimsóknir ofan, get ég ekki annars sagt það, well who cares, i'm gonna say it anyway!!

Vetrarmánuðirnir í búdapest, áhersla lögð á PEST, eru alveg brútal skal ég segja ykkur, hér er skítkalt, drullugt slabb og dimmt! Ekki svo mjög rómantísk lýsing hjá mér, hehe, oops, en voðalega falleg borg og allt það.... ah who am i kidding!! Ég þarf alveg að koma mér heim í smá rok og rigningu til að losa mig við heimþránna, fjarlægðin er sko alveg að gera fjöllin blá! Ísland er náttúrulega alltaf best er það ekki??!! Ég er annars búin að vera kanna bari og skemmtistaði pestarinnar voðalega mikið undanfarnar vikur, allt í vísindaskyni að sjálfsögðu, (er að kanna áhrif áfengis á lifur íslenskrar konu í ungverjalandi, fékk styrk frá nýsköpunarsjóði..) og það er heilmikið af skemmtilegum stöðum hérna, litlar sveittar kjallaraholur, með læv djass og annað, ekki slæmt...

Annars er skólinn byrjaður á ný og ekki mikil gleði þar, ekki alveg að nenna að byrja aftur á geðveikinni!! Bara tilhugsunin við að setjast niður og læra er svo fjarri mér, ekki alveg að nenna, við skulum vona að andinn grípi mig fyrr heldur en síðar!!

Jæja best að fara koma sér í bólið, er sko að fara í erfðafræði í fyrramálið, alveg fyndið, þeir eru e-ð að draga í efa að erfðafræðin sem ég tók í HÍ sé ekki næg!!! já já talk to the hand.. ég ætla bara að fara þarna og sjá hvað er svona mikið merkilegra en það sem ég hef þegar tekið.... bull.. jæja góð saga.. ég er hætt, well people, catch you later